Fréttir

Olíudreifing leigir birgðastöðina í Helguvík.

Þann 8.apríl s.l. var gengið frá undirritun samnings á milli Varnaramálastofnunar Íslands og Olíudreifingar um útleigu á eldsneytisbirgðstöð NATO í Helguvík til 30 ára. Inn í leigusamningnum er einnig leiga á birgðastöðvunum Fuel East og Fuel West á Keflavíkurflugvelli ásamt afgreiðslulögn frá Helguvík uppá Keflavíkurflugvöll. Utanríkisráðuneytið fól Ríkiskaupum að auglýsa útboðið á evrópska efnahagssvæðinu og var skiladagur tilboða 14. september.  Birgðastöðin í Helguvík er stærsta birgðastöð hérlendis og rúmar um 116 milljón lítra eldsneytis.  Birgðastöðvarnar í Fuel East og West eru 15 milljón lítra samtals.  Á Olíudreifingu hvílir sú kvöð á samningstímanum að allar þessar stöðvar verði settar í fullkomið ásigkomulag s.s. með endurmálun, útskiptingu rafmagns ofl.  Starfsemi í Helguvík verður að mestu tvískipt þ.e. hluti stöðvarinnar mun þjóna afgreiðslu við flug á Keflavíkurflugvelli og hluti hennar verður leigður út sem geymslurými.  Nú þegar er stærstur hluti stöðvarinnar kominn í notkun jafnframt því sem unnið er að endurbótum á stöðinni.


Picture_005
 
 

Eigendur Olíudreifingar

Olís N1 G. Hannesson


Þetta vefsvæði Byggir á Eplica


 
efnisyfirlit síðunnar