Um dreifingarsvið
Um dreifingarsvið
Dreifingarsvið Olíudreifingar annast móttöku, geymslu og afgreiðslu á fljótandi eldsneyti fyrir N1 hf. og Olíuverslun Íslands hf. Um 80 starfsmenn vinna á dreifingarsviði Olíudreifingar við skipulagninu, bókhald, akstur, í birgðastöðvum og á afgreiðslubát félagsins.
Auk þess að annast meðhöndlun á fljótandi eldsneyti annast sviðið söfnun og meðhöndlun úrgangsolía á landsvísu í samstarfi við aðra aðila. Jafnframt er gerður út olíubáturinn Laugarnes sem sér um stærri afgreiðslur í skip og báta innan hafna í Reykjavík og Hafnarfirði auk þess sem hann er notaður í birgðaflutninga á ströndina þegar þess gerist þörf.
Árlega meðhöndlar félagið um 500 milljón lítra fyrir eigendur sína og annast um 130.000 afgreiðslur. Afgreiðslurnar eiga sér stað um allt land í gegnum dreifingarnet Olíudreifingar sem nær til alls landsins. Til að leysa þetta verfkefni rekur félagið 29 birgðastöðvar, 50 olíubíla, afgreiðslubát og strandflutningaskip



